Árgangur 1976

Árgangur 1976

28.03.2009 18:39:31 / 76

NETFÖNG

Endilega setjið netföngin ykkar hér inn í athugasemdir svo hægt sé að senda póst á alla:)

» 33 hafa sagt sína skoðun

27.07.2008 18:48:30 / 76

ÁRGANGSMÓT 2010

Jæja fallegi árgangur....það er nú bara 2008 en árgangsmótið er 2010 það er nú ekki aldeilis langt í það. Þannig að við í nefndinni viljum fá comment á það hvenær best sé að halda mótið, að vori(mai) eða að hausti(sept)?? Árið 2005 komu örfáir eða bara rosa fáir, kannski var það tímasetningin eða við erum bara svona leiðinleg í flottasta og stærsta árganginum frá eyjum 1976:) NOT........
Munið það er ótrúlega gaman að hittast og sjá hvað allir eru orðnir flottir,gamlir,ljótir,sætir,stjörnur,forstjórar,mömmur,pabbar og kaupfélagsstjórar.....heheheheheheheheheheh.....Endilega skrifið hvað ykkur finnst okkur líst best á mai 2010 t.d. hvítasunnuhelgina!!!
Kveðja NEFNDIN Alla, Jón Viðar, Brynja Hlín og Sædís:):):)

» 34 hafa sagt sína skoðun

01.10.2005 17:41:28 / 76

Ein mynd komin!!!

Óðinn Sæbjörns var sá fyrsti til að senda inn mynd frá árgangsmótinu og þið getið skoðað hana hér . Ég skora á fólk að senda inn myndir, þó ekki nema til þess eins að svekkja þá sem nenntu ekki að mæta!


» 37 hafa sagt sína skoðun

28.09.2005 18:46:16 / 76

Tók einhver myndir???

Eru ekki einhverjir sem tóku myndir á árgangsmótinu og eru til í að deila þeim með okkur hinum? Endilega sendið þær á póstfangið argangur1976@hotmail.com


» 22 hafa sagt sína skoðun

11.09.2005 18:19:23 / 76

Frábær helgi liðin...

....og heilsan er svona la-la og það bara getur ekki annað verið en að það hafi verið þungt loft í seinni ferð Herjólfs í dag enda voru alls fjögur árgangsmót í Eyjum um helgina og vel tekið á því! Fyrir ykkur sem sáuð ykkur ekki fært að mæta þá er alveg óhætt að svekkja ykkur á því að við skemmtum okkur konunglega alla helgina og margt skemmtilegt sem gerðist sem fer beint í minningarbækurnar.

 Á föstudagskvöldinu hittumst við í veislusal Eyjabústaða í roki og rigningu, en við létum það ekki á okkur fá og var mikið stuð í liðinu. Óðinn Sæbjörns og Einar Björn voru með vægast sagt snilldarleg skemmtiatriði og það er nokkuð ljóst að næsta nefnd þarf að leggja sig hart fram til að toppa strákana. Þeir "bræður" tóku t.d. Baldur og Konna, voru með frábæra lagasyrpu þar sem Óðinn spilaði á gítar en Einar Björn á bongó trommur (ekki það að þeir kunni nokkuð á hljóðfærin) en aðal atriði kvöldsins verður að teljast vera formúlu-flugvéla atriðið sem fékk fólk til að gráta úr hlátri og ætlaði þakið hreinlega að rifna af húsinu á tímabili. Það er ekki ofsögum sagt að margir hafi verið með harðsperrur í kinnunum lengi á eftir. Athyglissýki helgarinnar verður þó að teljast brauð atriðið ógurlega sem kom í kjölfar súpunnar sem boðið var upp á. Þeir félagar Valtýr, Arnþór, Pétur, Jón Viðar, Kiddi Týr, Malli og Tryggvi Már tóku upp á því, við misgóðar undirtektir, að kasta brauði í fólk yfir borðhaldinu þar sem brauð hreinlega flaug í allar áttir og sýnir þetta og sannar að aldur og þroski fer ekki alltaf saman. Samt fyndið.Annars var mikið rifjað upp og mikið spjallað og ennþá meira hlegið. Frábært kvöld.

Á laugardegi hittist hópurinn niðri í Féló og það var mjög skemmtilegt að fara þangað en fæstir höfðu stigið fæti þarna inn síðan á unglingsárunum. Síðan var skundað upp í Tvist til Bigga og þar fengu allir pylsu og kók og það kom sér vel í þynnkunni. Eftir það fór rúta með okkur upp í Barnaskóla þar sem Hjálmfríður skólastjóri tók á móti okkur og labbaði með okkur um skólann, aðallega gömlu bygginguna og þau svæði sem okkar árgangur var mest á, m.a. gömlu læknisskoðunar stofuna og ansi margir fengu nærbuxna-hroll við að rifja það upp. Næst lá svo leiðin upp í Hamarsskóla þar sem Halldóra skólastjóri tók á móti okkur og fór svipaðann rúnt og Hjálmfríður gerði og það var líka mjög gaman að rifja allt upp þar. Margir fengu flash-back við að fara í skólana og þá er takmarkinu náð. Fyrir utan Hamarsskólann fórum við svo í reiptog þar sem Barnaskólinn sigraði í kvennaflokki en Hamarsskólinn í karlaflokki. Reyndar var Arnþór eini karlmaðurinn úr Barnaskólanum sem hafði heilsu til að mæta í rútuferðina þannig að sigurinn var nokkuð auðveldur.

Eftir stutt hlé mætti hópurinn svo í bekkjarpartý. Jóhanna Reynis var með partý fyrir Barnaskólagengið en það þurfti þrjú partý fyrir Hamarsskólagengið og voru þau haldin heima hjá Guðbjörgu Þórðar, Júlla Inga og Óðni Sæbjörns og er þeim hér með þakkað kærlega fyrir góð heimboð því það eru sannarlega ekki allir sem vilja hleypa þessum ´76 skríl inn til sín!! Eftir smá rútu klúður (gleymdist að panta hu-humm) fórum við upp í Höll og þar fengum við ljúffengan mat frá Grími og hans fólki og voru allir mjög ánægðir með þann hluta kvöldsins. Síðan var rennt í skemmtiatriði sem komu úr öllum áttum. Unnur Baldurs kom t.d. og rifjaði upp gamlar sögur af árgangsmeðlimum og þar heyrðust nöfn eins og Rúnar Karls, Karó, Sjöfn, Rikki og fleiri. Svo vorum við með leynigest sem reyndist vera Óla Heiða leikfimiskennari og hún minntist okkar sem sérlega prúðs og skemmtilegs árgangs. Grunar að hún hafi bara viljað vera kurteis.... Svo var keppni á milli skólanna í leik þar sem spiluð voru lög úr gömlum sjónvarpsþáttum og þar var hamagangurinn svo mikill að sviðið í Höllinni lét á sjá og Júlli Inga slasaði sig. En Hamarsskóli sigraði þennan leik með yfirburðum og greinilega ekki haft mikið að gera á grunnskólaárunum og bara glápt á sjónvarpið. Allavega Júlli enda vissi hann mest.... Jón Viðar lét sitt ekki eftir liggja og leiddi fjöldasöng af miklum glæsibrag, Einar Björn og Óðinn höfðu heldur ekki sagt sitt síðasta og komu með enn eitt ógleymanlegt atriði (flygill og typpi - say no more) og enn og aftur létu kinna-harðsperrurnar á sér kræla. Veittar voru viðurkenningar fyrir margt gamalt og gott og sem dæmi þá fékk Sigurjón Lýðs það loksins skjalfest að hann ER síðasti homminn. Hann var tregur til að taka við viðurkenningarskjalinu en gerði það þó að lokum og má segja að þetta sé mikil tímamót í hans lífi! 10-G í Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja veturinn ´91-´92 fékk líka viðurkenningu fyrir að vera hávaðasamasti bekkur sem sögur fara af í sögu skólans og það skal tekið fram að skólinn lagði upp laupana eftir þennan vetur af einhverjum óútskýranlegum ástæðum!! Jórunn Lilja steig á stokk og tók brot úr nokkrum gömlum slögurum, m.a. úr laginu Fire með Pointer Sisters sem hún söng svo eftirminnilega á 1. des skemmtun í Samkomuhúsinu þarna um árið. Guðbjörg Ragnars skilaði sérstakri kveðju frá Stáka í Ástralíu og það var mikið klappað fyrir honum enda lifir hann enn í hjörtum okkar. Eftir skemmtiatriðin var svo ball með Vinum Vors og Blóma þar sem Beggi í Sóldögg átti sviðið og sjaldan sem dansgólfið hefur verið jafn troðið. Frábært kvöld og frábær helgi í alla staði þrátt fyrir slaka mætingu en á milli 50 og 60 manns mættu á svæðið en það kom ekki að sök og þrusu stemmari í hópnum alla helgina.  Núverandi undirbúningsnefnd lauk svo sínu verkefni með því að tilkynna hverjir eru í næstu nefnd, fyrir árgangsmót árið 2010 og það eru Alla Run og Jón Viðar úr Barnaskóla og Brynja Hlín og Sædís úr Hamarsskóla og verður það án efa glæsilegt hjá þeim. Að lokum vil ég þakka öllum kærlega fyrir samveruna um helgina og vona að allir hafi skemmt sér vel.

Hildur Sæ.


» 48 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 15:08:58 / 76

Allt að gerast í skráningunni!!

Núna er gjörsamlega allt að verða vitlaust í skráningunni á árgangsmótið og má segja að síminn stoppi ekki hjá nefndarmeðlimum. Mikil spenna er að myndast fyrir næstu helgi og það er bara frábært, enda ekki við öðru að búast af besta árganginum. Það er allt að verða ljóst varðandi bekkjapartýin á laugardeginum og það sem er ákveðið er þetta: Matta verður með partý fyrir sinn bekk, Óðinn Sæbjörns verður með partý fyrir sinn bekk, Júlli Inga verður með partý fyrir sinn bekk og Guðbjörg Þórðar verður með partý fyrir sinn bekk. Ekki er ennþá ljóst með eitt partýið í Barnaskólanum en það verður klappað og klárt fyrir helgi.

Ein breyting hefur orðið á dagskránni en hún er sú að í staðinn fyrir að byrja kl. 14:00 á laugardeginum þá ætlum við að byrja kl. 13:30 og er mæting þá niður í Féló. Þetta er gert til að fólk hafi aðeins meiri tíma til að taka sig til fyrir bekkjapartýin enda var áður áætlaður tími ansi knappur. Vonandi er fólk sátt við þessa breytingu.

 Fyrir þá sem eiga eftir að leggja inn árgangsmótsgjaldið þá fylgja með greiðsluupplýsingar:

Banki       hb         Reikningsnr.        Kt.            Upphæð fyrir einn     Upphæð fyrir tvo

 0582      26             7776        011076-4169            6,950.-                  13,900.-

Mundið bara að láta kennitölu ykkar fylgja með svo að það fari ekki á milli mála hver er að greiða gjaldið!


» 16 hafa sagt sína skoðun

04.09.2005 00:25:26 / 76

Nýjar myndir og fleira....

Nú eru komnar inn fleiri myndir og þ.á.m. myndir frá síðasta árgangsmóti svona rétt til að rifja upp stemmarann. Svo má líka geta þess að ennþá eiga margir eftir að sækja hópmyndina sína frá síðasta árgangsmóti og er hægt að nálgast þær hjá Hildi Sævalds s:846-6469. Núna eru einungis fimm dagar í fjörið og ennþá bætist í hóp þeirra sem ætla að mæta á svæðið. Nafnalisti yfir þá sem ætla að koma ætti að geta komið inn á síðuna á morgun eða hinn og svo eru það alltaf einhverjir sem eiga erfitt með að ákveða sig....... KOOOOMAAAA SOOOOOO!!!   Alltaf bætist svo í dagskránna og má lofa frábærri skemmtun með tónlistaratriðum og ýmsu fleiru sem verður nánar útlistað þegar nær dregur.


» 66 hafa sagt sína skoðun

25.08.2005 21:58:54 / 76

Matseðillinn er tilbúinn!

Matseðill í Veislusal Eyjabústaða föstudagskvöldið 9. september 2005

Rjómalöguð- og koníaksbætt sveppasúpa

Brauð

Matseðill í Höllinni laugardagskvöldið 10. september 2005

Hvítvíns- og coriandermarineraður skötuselur með koníaksbættri humarsósu

Steinbítspiparsteik með piparsósu

Nautacarpaccio með púðursykursvinagrette

BBQ marineraðar kjúklingabringur með sætri BBQ sósu að hætti Hallarmanna

Lambalæri, marinerað með ferskum kryddjurtum s.s rósmarín, timjan, steinselju,   basiliku, hvítlauk og lemongras

Baconfylltar Maldonkartöflur og Lambagljáa (sósa)

Meðlæti: Ítölsk snittubrauð, Tabinada, hrísgrjón, smjör


» 51 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 15:40:31 / 76

SSSól hættir við hahahahaha!!!!

Beggi        Já þetta er nú ekki alveg einleikið þetta hljómsveitavesen. Það nýjasta nýtt í stöðunni er að SSSól eru hættir við að koma til Eyja og ætla frekar að spila á balli í Kanada hjá einhverjum vestur-Íslendingum eða eitthvað! En Einar Björn og Simmi í Höllinni deyja ekki ráðalausir og pöntuðu Vini Vors og Blóma með Begga úr Sóldögg í broddi fylkingar. Það hljómar bara helvíti vel og munu þeir án efa halda uppi stuðinu eins og þeim einum er lagið. Þannig að hættið við að æfa gömlu Sólar-lögin og byrjið endilega að æfa textana við Blóma-lögin (man reyndar ekki eftir neinu í augnablikinu!) og setið ykkur í rétta gírinn. Vonandi verður þetta síðasta hljómsveitartilkynningin fyrir þetta árgangsmót.......


» 65 hafa sagt sína skoðun

17.08.2005 22:59:40 / 76

Dagskráin

FÖSTUDAGUR 9. SEPTEMBER

 

20:00               Mæting í veislusal Eyjabústaða

20:30               Léttur kvöldverður

21:00               Partýstemning

23:00               Reiptog milli Barnaskóla og Hamarsskóla

23:05               Áframhaldandi djamm fram undir morgun

 

 

LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER

 

14:00               Mæting í Féló

15:00               Rútuferð

16:00               Hlé

17:30               Bekkjapartý

19:00               Rúta sækir fólk í bekkjapartýin

19:30               Mæting upp í Höll

20:00               Myndataka

20:30               Kvöldverður   

21:30               Skemmtiatriði

00:00               Dansleikur með SSSól


» 58 hafa sagt sína skoðun

16.08.2005 23:14:42 / 76

Allt að smella saman...

Nefndin hittist í gærkvöldi á Café María og var þrusustemning í hópnum. Þeir sem mættu voru Guðbjörg Þórðar, Valgerður, Einar Björn, Anna Hulda, Árni Gunn, Jóhanna Reynis og Hildur Sæ. og var mikið hlegið og blaðrað. Allt er að verða klárt fyrir árgangsmótið og eingöngu smá fínísering eftir. Einar Björn og Óðinn ætla að vera skemmtanastjórar á föstudagskvöldinu og Hildur Sæ og Gummi á laugardagskvöldinu og munu þau eflaust koma með einhver stórgóð skemmtiatriði handa okkur. Það er kannski allt í lagi að benda fólki á að skella sér í ræktina og taka svolítið á því fyrir árgangsmótið því að við ætlum að gera reiptogið sem var síðast á milli skólanna að hefð og verða veittir farandbikarar bæði í karla- og kvennaflokki. Til að það fari ekkert á milli mála þá gjörsamlega malaði Hamarsskóli Barnaskólann á síðasta árgangsmóti í báðum flokkum og því er það titill að verja fyrir Hamarsskólann.

Ef einhverjir eru í stuði þá mega þeir sömu alveg brenna geisladiska með gömlum og góðum smellum sem við getum notað á föstudagskvöldinu, því að við höfum veislusal Eyjabústaða alveg út af fyrir okkur alla nóttina ef við viljum og því væri ekki verra að hafa nóg af tónlist. Einnig væri frábært ef þeir aðilar sem spila á hljóðfæri (og eiga einhver slík) væru til í að koma með þau, og skiptir þá ekki máli hvort það eru gítarar, harmonikkur eða tvær jógúrtdollur teipaðar saman með hrísgrjónum inní...allt er vel þegið.

Svo er bara um að gera að fara að leggja höfuðið í bleyti og rifja upp fyndin atvik frá grunnskólaárunum.....sem mun örugglega ekki standa á! Sjáumst í Eyjum þann 9. september .......Í STUUUUUUUÐI!!!!!!


» 55 hafa sagt sína skoðun

11.08.2005 21:25:26 / 76

Skráning á árgangsmótið.

      Svo virðist sem margir árgangsmeðlimir séu að bíða eftir næstu mánaðarmótum til að borga gjaldið á mótið og verðum við að koma til móts við það. Í staðinn viljum við biðja ykkur að láta okkur vita ef þið ætlið að koma þó svo að þið séuð ekki búin að borga því að endanleg hausatala verður að fara að koma í ljós mjög bráðlega til að hægt sé að ganga frá pöntunum á mat og ýmsu öðru. Það væri mjög gott ef þið gætuð skráð ykkur hérna í commentakerfinu eða sent e-mail á argangur1976@hotmail.com eða bara hringt í einhvern í nefndinni. Hlökkum til að heyra frá ykkur.......nefndin.

Anna Hulda Ingadóttir s: 481-2890 / 899-7776

Hildur Sævaldsdóttir s: 846-6469

Einar Björn Árnason s: 481-2472

Guðbjörg Þórðardóttir s: 567-5855

Valgerður Þorsteinsdóttir s: 564-4358

Jóhanna Kr. Reynisdóttir s: 481-3090


» 70 hafa sagt sína skoðun

09.08.2005 23:47:13 / 76

KOOOOOOOMAAAAAAA SOOOOOOOOOO!!!!

         Jæja kæru árgangsmeðlimir, eitthvað ætlar það nú að ganga brösulega að fá fólk til að borga gjaldið á árgangsmótið og þess vegna er ekkert annað að gera en að reka á eftir ykkur. Gjalddagi var 1. ágúst sl. en hefur verið framlengdur til 20. ágúst þannig að nú er um að gera að láta sitt ekki eftir liggja og drífa sig niður í banka og borga greiðsluseðilinn. Nefndin hefur staðið í ströngu undanfarnar vikur í undirbúningi fyrir árgangsmótið og það styttist óðum í fjörið en nú þarf endanlegur hausafjöldi að fara að komast á hreint til að hægt sé að hnýta alla lausa enda varðandi skipulagið. Ef einhver vandamál eru varðandi greiðsluna þá er bara um að gera að hafa samband við Önnu Huldu gjaldkera, eða bara einhvern annan í nefndinni.  Að lokum......... KOOOOMAAAAAAA SOOOOOOOOO!!!!!

Nefndin


» 21 hafa sagt sína skoðun

28.07.2005 16:22:36 / 76

SSSól koma!!!

SSSól        Þá er það orðið ljóst að SSSól ætla að spila á ballinu í Höllinni á árgangsmótinu. Það er nú engu verri kostur en Sálin hans Jóns míns sem afboðuðu komu sína (bara betri kostur ef eitthvað er fyrir Einar Björn) og má lofa brjálaðri stemmningu. Þá er bara að fara að spila allar gömlu plöturnar og rifja upp textana við lögin!!


» 29 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 23:49:24 / 76

Sálin hans Jóns míns hættir við!!!

Sálin         Já, ótrúlegt en satt þá ætlar stórhljómsveitin Sálin hans Jóns míns að svíkja okkur en þeir hafa afboðað komu sína sömu helgi og árgangsmótið verður. Þetta eru alveg gífurleg vonbrigði svo ekki sé nú meira sagt því að mikil spenna í kringum árgangsmótið hefur ekki síst verið vegna fyrirhugaðs dansleiks með Sálinni í Höllinni á laugardagskvöldinu. Ég talaði við Simma í Höllinni í dag og hann sagði mér að tveir meðlimir úr hljómsveitinni væru að fara einhvert erlendis og þess vegna væri þessi staða komin upp. Hann sagði mér líka að hann myndi gera allt sem í valdi hans stæði til að finna aðra hljómsveit og nefndi nokkur nöfn. Efstir á lista hjá honum eru Vinir vors og blóma, með Begga úr Sóldögg í broddi fylkingar en þeir slógu eftirminnilega í gegn á nýarsballinu síðasta í Höllinni. Einnig nefndi hann hljómsveitina Skítamórall en það mun koma í ljós á næstu dögum hvaða hljómsveit verður endanlega fyrir valinu. Simmi sagði að hann myndi hafa  Einar Björn með í ráðum og við treystum þeim til að kippa þessu í liðinn fyrir okkur. Vonandi kemur þetta þó ekki að sök fyrir ykkur sem eruð ákveðin í að mæta, við látum ekki svona smotterí slá okkur út af laginu. Eins og áður hefur verið nefnt þá er miði á ball innifalinn í verðinu á árgangsmótið og við höldum okkar striki með það. Ef þið hafið einhverjar athugasemdir eða ábendingar þá skora ég á ykkur að hafa samband, annaðhvort með því að hringja í einhvern í nefndinni eða þá með tölvupósti á argangur1976@hotmail.com .

 

Að lokum minni ég á að greiða þarf þátttökugjaldið þann 1. ágúst nk. og skora ég á alla þá sem eru ákveðnir í að mæta að láta það ekki dragast.

 

Með Þjóðhátíðarkveðju, sjáumst í dalnum..... Hildur Sævalds.


» 23 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 629 dögum
ÁRGANGSMÓT HEFST
Könnun
HVENÆR VILJIÐ ÞIÐ HAFA NÆSTA MÓT??
Mai 2010 (Hvítasunnuhelgi)
39 atkvæði

September 2010
3 atkvæði

Alveg sama
12 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 54